Bikarkeppnir FRÍ fóru fram um helgina

Lið HSK Selfoss í fullorðinsflokki
Lið HSK Selfoss í fullorðinsflokki

Bikarkeppni FRÍ í flokki fullorðinna fór fram í Kaplakrika 7.mars sl. HSK/Selfoss sendi ungt og kraftmikið lið til leiks. Liðið stóð sig frábærlega og endaði í 3.sæti í stigakeppni mótsins, mjög góður árangur hjá ungu og efnilegu liði. Lið FH sigraði stigakeppnina að þessu sinni.

Tvö HSK met féllu um helgina. Þórhildur Sara Jónasdóttir setti HSK met í 400m hlaupi 18 – 19 ára stúlkna en hún hljóp á tímanum 61,13sek en fyrra met var 61,39sek. Kvennasveit HSK Selfoss setti einnig HSK met í 4x200m boðhlaupi en þær hlupu á tímanum 1:49,82 mín, eldra met var 1:50,82 mín. Sveitina skipuðu þær Anna Metta Óskarsdóttir, Helga Fjóla Erlendsdóttir, Þórhildur Sara Jónasdóttir og Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir.

 

Bikarkeppni 15 ára og yngri fór einnig fram í Kaplakrika sunnudaginn 8.mars. Liðið stóð sig vel og hafnaði í 5.sæti keppninnar. Lið ÍR sigraði mótið að þessu sinni. Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir varð tvöfaldur bikarmeistari, í 60m grindarhlaupi og langstökki, með stökki upp á 5,18m. Sannarlega glæsilegur árangur það.

Þórhildur Sara Jónasdóttir

Boðhlaupssveit HSK Selfoss 

Lið HSK Selfoss 15 ára og yngri