Bikarmót í hópfimleikum

1. flokkur mix varð Bikarmeistari um helgina
1. flokkur mix varð Bikarmeistari um helgina

Helgina 20. - 22. mars fór fram Bikarmót í hópfimleikum. 

Bikarmót er eitt af okkar stærstu mótum og því alltaf mikil spenna fyrir því. 

Selfoss átti lið í 3. flokki hópfimleika og 3. flokki í stökkfimi, 2. flokki, 2 lið i 1. flokki og lið í meistaraflokki. 
Liðin hafa verið að undirbúa sig fyrir þetta mót síðastliðnar vikur og gaman að sjá uppskeru helgarinnar en öll úrslitin má sjá hér: https://live.sporteventsystems.se/Score/WebScore/3564?country=isl&year=-1

Stúlkurnar í 3. flokki hópfimleika og stökkfimi áttu gott mót og söfnuðu miklu í reynslubankann. 2. flokkur hækkaði sig um 2 sæti frá því á síðasta móti og hækkuðu meðal annars um 2,5 á gólfi sem er mikið stökk. 

1. flokkur mix varð bikarmeistari í sínum flokki eftir mjög skemmtilega keppni og stúlkurnar í 1. flokki fengu bronsið. Bæði liðin áttu mjög góðan dag, skiluðu af sér hreinum og vel útgærðum æfingum og mega vera virkilega stolt af sér. Meistaraflokkurinn okkar var algjörlega til fyrirmyndar í sinni keppni, voru í 2. sæti á 2 áhöldum af 3 og í 3. sæti í heildina. Þær opnuðu mótið með virkilega flottum dýnuæfingum sem settu línuna fyrir mótið. Fyrir þá sem náðu ekki að horfa má finna upptökuna hér á sarpinum: https://www.ruv.is/sjonvarp/dagskra/ruv/2026-03-22/5491602

Við erum stolt af okkar iðkendum og þjálfurum eftir helgina, til hamingju öll!

 

Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Íslandsbanka, Hótel Geysi, Bílverk BÁ og HSH þrif og flutninga.