Býr kraftur í þér?

Búið er að opna formlega fyrir skráningar sjálfboðaliða á vef Smáþjóðaleikanna sem haldnir verða á Íslandi 1.- 6. júní 2015.

Smáþjóðaleikarnir eru stærsta verkefni sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur tekið að sér. Búist er við að um 2500 manns komi að leikunum með einum eða öðrum hætti, þar af 800 keppendur. Reiknað er með um 25-30 þúsund áhorfendum. Störf sjálfboðaliða skipa mikilvægan sess í verkefni af þessari stærð og því leitar ÍSÍ til þjóðarinnar um aðstoð. Áætlað er að um 1200 sjálfboðaliðar starfi á leikunum. Sjálfboðaliðastörfin felast meðal annars í því að aðstoða við viðburði eins og setningar- og lokahátíð og ýmsa þjónustuþætti í tengslum við íþróttagreinarnar. ÍSÍ útvegar sjálfboðaliðum glæsilegan fatnað frá ZO•ON sem þeir klæðast við störf sín á Smáþjóðaleikunum og fá síðan til eignar.

„Náttúrulegur kraftur“ er slagorð Smáþjóðaleikanna 2015. Smáþjóðaleikarnir eru auglýstir á fallegum veggspjöldum af íþróttafólki í íslenskri náttúru. Við Íslendingar erum hvað stoltust af náttúru Íslands og íþróttafólkinu sem við eigum. Við búum yfir stórfenglegri náttúru sem er í senn einstaklega falleg og kröftug og glímu okkar við náttúruöflin þekkja allir vel. Hugmyndin á bak við það að blanda saman náttúrumyndum og íþróttafólki er sú að sýna sameiginlegan kraft íslensku náttúrunnar og íþróttafólksins. Íþróttafólkið okkar býr yfir miklum krafti sem brýst út í æfingum og íþróttakeppnum og glímunni við andstæðinginn. Sjálfboðaliðar Smáþjóðaleikanna 2015 búa einnig yfir miklum krafti, leggja hönd á plóg og aðstoða íþróttafólkið að ná sínum markmiðum. Sjálfboðaliðar hafa jákvæð áhrif með nærveru sinni og með þeirra hjálp náum við öll enn betri árangri. Markmið sjálfboðaliðastarfs á Smáþjóðaleikunum er að leggja sitt af mörkum og fá um leið tækifæri til vaxtar og reynslu sem nýtist í viðfangsefnum lífsins.

Smáþjóðaleikarnir þarfnast framlags sjálfboðaliða. Langar þig að taka þátt í leikunum sem sjálboðaliði? Vilt þú leggja þitt að mörkum til íþróttafólksins? Hefur þú áhuga á því að kynnast fólki, fylgjast með besta íþróttafólki Evrópu og jafnvel að sjá ný íþróttamet slegin? Býr kraftur í þér?

Umf. Selfoss hvetur fólk til þess að skrá sig í sjálfboðaliðastörf á heimasíðu Smáþjóðaleikanna 2015 undir hnappnum „Sjálfboðaliðar".