Eftirtektarvert framlag Selfyssinga á HM

Selfoss vs. Frakkland
Selfoss vs. Frakkland

Heimsmeistaramótinu í handbolta lauk á sunnudag með sigri frænda okkar Dana en íslenska liðið endaði í ellefta sæti. Eins og Íslendingum er kunnugt léku Selfyssingar stórt hlutverk í liðinu og má segja að handboltaheimurinn bíði spenntur eftir framgangi þessa unga og efnilega liðs á næstu árum.

Þegar tölfræði mótsins er skoðuð sést að framlag okkar pilta til liðsins var töluvert en Selfyssingar skoruðu samtals 73 mörk og voru með yfir 50% skotnýting, gáfu 32 stoðsendingar og áttu 61 brotin fríköst.

Þá eru ónefndar allar þær bólgur sem Jón Birgir Guðmundsson sjúkraþjálfari losaði á mótinu en það er a.m.k. nýtt HSK-met.

esó/gj

---

F.v. eru Elvar Örn Jónsson, Teitur Örn Einarsson, Ómar Ingi Magnússon og Haukur Þrastarson. Á myndina vantar Bjarka Má Elísson og Jón Birgi.
Ljósmynd: HSÍ