Eva María Íslandsmeistari í hástökki

eva maría
eva maría

Meistaramót Íslands í fullorðinsflokki var haldið í Kaplakrika um liðna helgi, 22.-23. febrúar. HSK/Selfoss átti þar góðan hóp keppenda sem öll stóðu sig með prýði. Uppskeran var eitt gull, eitt silfur og eitt brons, ásamt HSK metum og persónulegum bætingum.

Eva María Baldursdóttir Selfossi sigraði í hástökki kvenna er hún vippaði sér yfir 1,76 m og bætti sig innanhúss um þrjá cm. Nú á hún jafnhátt innan- og utanhúss. Þetta er HSK met í þremur flokkum stúlkna; 16-17 ára, 18-19 ára og 20-22 ára.

Fjóla Signý Hannesdóttir Selfoss vann til silfurverðlauna  í 60 m grindahlaupi á fínum tíma 9,10 sek. en hún á best 9,00 sek.

Hildur Helga Einarsdóttir einnig í Selfoss tók brons í kúluvarpi kvenna með kast upp á 11,19 m.

HSK/Selfoss átti að sjálfsögðu fleiri keppendur sem stóðu sig allir vel og voru flestir að bæta sinn persónulega árangur.

Öll úrslit mótsins má finna á Þór, móttaforriti FRÍ