Evrópumót í hópfimleikum

Átta iðkendur frá Fimleikadeild Selfoss kepptu fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í hópfimleikum í Finnlandi. Mótið bauð upp á gleði, spennu og erfið augnablik, en við erum afar stolt af okkar fólki og framlagi þess til íslensku landsliðanna.

Liðsheild og gleði hjá drengjaliðinu

Drengjalið Íslands hafnaði í fimmta sæti bæði í undanúrslitum og úrslitum eftir vel heppnað mót. Selfyssingarnir Eiður Hilmar Sigmundsson, Birgir Árni Sigmundsson og Hinrik Jarl Aronsson voru þar allir að keppa á sínu fyrsta Evrópumóti.

Mikil liðsheild og gleði einkenndu hópinn og það sást á strákunum að þeim leið vel á keppnisgólfinu. Þeir studdu hver annan og tókust saman á við stórt verkefni. Það var virkilega gaman að sjá Selfyssingana þrjá stíga sín fyrstu skref á Evrópumóti og öðlast dýrmæta reynslu sem þeir taka með sér áfram.

Heiðrún Ósk Sævarsdóttir, þjálfari hjá Fimleikadeild Selfoss, var þjálfari drengjaliðsins og stóð sig frábærlega í því hlutverki. Við erum stolt af hennar framlagi til verkefnisins og vinnunni með þessum efnilega hópi.

Eiður Hilmar - #2 og Hinrik Jarl #7

Selfossdrengir á leið inn í keppnishöllina. Birgir Árni #8


Íslenska drengjalandsliðið.

Stórkostleg undanúrslit hjá stúlknaliðinu

Elva Lillian Sverrisdóttir og Kristín María Kristjánsdóttir kepptu með stúlknaliði Íslands sem átti stórkostlegan dag í undanúrslitum og tryggði sér efsta sætið inn í úrslitin. Liðið sýndi flottar æfingar og mikla getu og tilhlökkunin fyrir úrslitadeginum var því mikil.

Því miður gengu hlutirnir ekki jafn vel upp í úrslitunum og liðið endaði í sjötta sæti. Það voru sár vonbrigði fyrir öflugt lið sem hafði sýnt hvað í því býr og keppti með mikla erfiðleika í æfingum sínum.

Við erum engu að síður afar stolt af Elvu, Kristínu og liðsfélögum þeirra. Þær lögðu allt í keppnina og skildu allt eftir á gólfinu. Frammistaðan í undanúrslitunum sýndi svo sannarlega getu liðsins og það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilegu stelpum áfram.

Elva Lillian Sverrisdóttir - #6

Kristín María Kristjánsdóttir - #11

Íslenska stúlknalandsliðið

Kvennaliðið hársbreidd frá verðlaunasæti

Victoria Ann Vokes, Elsa Karen Sigmundsdóttir og Silvia Rós Nokkala Valdimarsdóttir voru fulltrúar Selfoss í kvennaliði Íslands og kepptu allar með liðinu bæði í undanúrslitum og úrslitum.

Silvia varð því miður fyrir meiðslum á trampólíni í úrslitunum. Hún hafði lokið tveimur virkilega góðum stökkum þegar hún meiddist í því þriðja og gat því ekki tekið þátt á næstu áhöldum. Það var sárt að sjá hennar keppni enda með þeim hætti eftir allan undirbúninginn og við sendum henni hlýjar batakveðjur.

Elsa Karen og Victoria Ann eru á yngsta ári í fullorðinsflokki en kepptu engu að síður með stökk með háan erfiðleika sem þær náðu að framkvæma mjög vel. 

Kvennaliðið hafnaði í fjórða sæti í úrslitunum, hársbreidd frá bronsverðlaunum. Gríðarlega mjótt var því á mununum eftir harða keppni og við erum afar stolt af okkar stelpum og framlagi þeirra til liðsins.

Selfossstúlkur í gólfæfingum. Victoria Ann #8.

Elsa Karen #6 og Silvia Rós #9

Íslenska kvennalandsliðið

Dýrmæt reynsla til framtíðar

Það er stórt verkefni að undirbúa og keppa á Evrópumóti og að baki liggja ótal æfingastundir, samvinna og metnaður.

Iðkendurnir okkar koma heim með reynslu sem mun nýtast þeim í næstu verkefnum. Við erum stolt af þeim öllum, stolt af íslensku landsliðunum og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu og árangri íslenskra hópfimleika.

Fleiri myndir má finna á vef Fimleikasambands Íslands.

 

Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Bílverk BÁ, HSH þrif og flutninga, Íslandsbanka og Hótel Geysi.