Nú um helgina fór fram Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum.

Mótið fór fram í Sola í Noregi og átti Selfoss 2 lið á mótinu, sem er sannarlega eftirtektarverður árangur hjá félagi af okkar stærðargráðu. Til þess að öðlast keppnisrétt þurftu liðin að vera í efstu 2 sætunum á úrtökumóti sem Fimleikasamband Íslands stóð fyrir í haust en liðin gerðu sér lítið fyrir og sigruðu þau mót og fengu því að keppa fyrir Íslands hönd á þessu móti.
Liðin voru vel undirbúin þar sem þau hafa á undanförnum vikum lagt mikið á sig, bæði líkamlega og andlega til þess að líða sem best á keppnidegi. Á norðurlandamóti mega liðin samanstanda af iðkendum á aldrinum 14-17 ára en liðin okkar eru ung, þar sem meira en helmingur keppenda er enn á aldrinum 14-15 ára og mættu því keppa aftur á Norðurlandamóti eftir 2 ár.
Keppnin gekk vel hjá báðum liðum, einhverjir hnökrar en heilt yfir gekk keppnin vel og keppendur og þjálfarar mega ganga mjög stolt frá þessu verkefni.
Selfoss mix var fyrra liðið til að keppa en allir keppendur nema 1 voru að keppa á sínu fyrsta stórmóti. Keppendurnir stóðu sig virkilega vel og skiluðu fallegum og vel æfðum æfingum. Liðsheildin var góð og sást vel hvernig keppendur studdu vel við hvert annað. Liðið endaði í 5. sæti af 7 liðum eftir góðan dag í sterkri liðakeppni.

Stúlknalið Selfoss keppti svo í næsta hluta en þar voru 10 lið mætt til leiks, tvö frá hverju Norðurlandi. Selfoss átti flottar gólfæfingar, sannfærandi og vel framkvæmdar dýnuæfingar og gott trampólín. Gleðin skein af þeim og þær voru mjög öruggar í sínu. Baráttan í stúlknakeppninni var mikil en liðið endaði í 5. sæti, aðeins 0,35 stigum frá bronsinu en mjög jafnt var á milli liðanna sem röðuðu sér í 3.-6. sætið.

Hér má sjá úrslit mótsins: https://tropp.no/resb4?c=7e159yk0
Hér má sjá myndir frá mótinu: https://fimleikasambandislands.smugmug.com/2026/NMj-%C3%AD-h%C3%B3pfimleikum
Við óskum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu um helgina, þið megið svo sannarlega stolt af ykkur fyrir ykkar æfingar, hugarfar og árangur.
Við viljum endilega líka þakka stuðninginn, bæði í stúkunni og á meðan á undirbúningi stóð. Selfoss átti um 60 manna hóp af stuðningsmönnum í stúkunni sem er virkilega dýrmætt, að finna orkuna og heyra klappið gefur mikið í keppninni. Þar að auki voru mörg fyrirtæki og einstaklingar sem hjálpuðu hópnum að fjármagna ferðina og fyrir það erum við innilega þakklát. Stærsti stuðningsaðili keppenda fyrir mótið var Set en einnig studdu þau fyrirtækin Egill Guðjóns ehf, Fossvélar og Lágafell verslun og byggingar. Fyrirtækin Hótel Geysir, Reykjavík Warehouse, Lena verslun og ÍSAM heildsala styrktu þau einnig með gjöfum.
Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Íslandsbanka, Hótel Geysi, HSH þrif og flutninga og Bílverk BÁ.