Frábæru tímabili fagnað á lokahófi handknattleiksdeildar

leikmenn ársins
leikmenn ársins

Það var margt um dýrðir á vel heppnuðu lokahófi handknattleiksdeildar Selfoss í gær, sem haldið var á Hótel Selfoss, þar sem frábæru tímabili var fagnað. Meðal atriða sem boðið var uppá var happdrætti, uppistand frá Andra Ívarssyni, uppboð á treyjum ásamt því að Bjartmar Guðlaugsson kom sem leynigestur og tók nokkur lög. Gunnar Sigurðarson stýrði hátíðarhöldunum með harðri hendi. 

Byrjað var á því að kveðja þá tvo leikmenn sem eru að fara frá félaginu, þá Eyvind Hrannar Gunnarsson sem er að flytja til Danmerkur og Teit Örn Einarsson sem er að fara spila með IFK Kristianstad í Svíþjóð á næsta tímabili.

Hápunktur lokahófsins er eins og alltaf verðlaunaafhendingin en eftirfarandi leikmenn meistaraflokks kvenna og karla fengu viðurkenningu.

Markadrottning: Perla Ruth Albertsdóttir, 105 mörk (80% skotnýting)
Varnarmaður ársins: Hulda Dís Þrastardóttir, 84 brotin fríköst
Sóknarmaður ársins: Kristrún Steinþórsdóttir, 78 mörk og 37 stoðsendingar
Efnilegasti leikmaður: Ída Bjarklind Magnúsdóttir, 43 mörk og 47 brotin fríköst
Baráttubikarinn: Harpa Sólveig Brynjarsdóttir
Leikmaður ársins: Perla Ruth Albertsdóttir

Mynd: verðlaunahafar meistaraflokks kvenna.

Markakóngur: Teitur Örn Einarsson, 217 mörk (56% skotnýting)
Besti leikmaður í úrslitakeppninni: Einar Sverrisson
Varnarmaður ársins: Hergeir Grímsson, 107 brotin fríköst
Sóknarmaður ársins: Teitur Örn Einarsson 
Efnilegasti leikmaður: Haukur Þrastarson, 139 mörk, 128 stoðsendingar og 196 brotin fríköst.
Baráttubikarinn: Eyvindur Hrannar Gunnarsson
Leikmaður ársins: Haukur Þrastarson

Mynd: verðlaunahafar meistaraflokks karla.

Félagi ársins var valinn Sigurður Þór Ástráðsson, sem unnið hefur mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið. Hann hefur m.a. keyrt liðsrútu meistaraflokks karla í vetur og hefur hann keyrt 2342,4 km á tímabilinu!

Mynd: Sigurður Þór Ástráðsson var valinn félagi ársins.

Nú var í fyrsta skipti veitt viðurkenning fyrir þá sem hafa náð 100 leikjum með félaginu. Að þessu sinni var þeim leikmönnum sem spila með liðinu núna veitt viðurkenning, en þau eru: 

Einar Sverrisson
Eyvindur Hrannar Gunnarsson
Guðni Ingvarsson
Helgi Hlynsson
Hergeir Grímsson
Sverrir Pálsson
Áslaug Ýr Bragadóttir
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir
Hulda Dís Þrastardóttir
Kristrún Steinþórsdóttir
Perla Ruth Albertsdóttir

Mynd: Leikmenn fengu viðurkenningu fyrir að hafa spilað 100 leiki með félaginu.