Frjálsíþróttaskóli UMFÍ

Frjálsíþróttaskóli
Frjálsíþróttaskóli

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ verður starfræktur í sjöunda sinn á HSK svæðinu í sumar. Að þessu sinni er hann á Selfossi 12.-16. júní í samstarfi við frjálsíþróttaráð HSK. Skólinn er ætlaður börnum á aldrinum 11 til 18 ára. Ungmennin koma saman á hádegi á sunnudegi en skólanum lýkur á hádegi á fimmtudegi í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í frjálsum íþróttum.

Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg það er til dæmis farið í sund, leiki, haldnar kvöldvökur og endar skólinn svo með móti og pylsuveislu. Þáttökugjald í skólann er kr. 20.000 en innifalið í því er kennsla, fæði, gisting o.fl. Ungmennafélag Íslands hefur yfirumsjón með framkvæmd skólans og annast sameiginlega kynningu á starfseminni. Skólinn er í samvinnu við Frjálsíþróttasamband Íslands. Aðalumsjónarmenn með skólanum 2016 eru Ágústa Tryggvadóttir og Fjóla Signý Hannesdóttir en einnig munu fleiri þjálfarar og aðstoðarmenn vinna við skólann. Lagt er upp með að fagmenntaðir kennarar sjái um kennsluna á hverjum stað til að tryggja sem besta kennslu fyrir ungmennin.

Í lok skólans fá öll ungmennin viðurkenningarskjal til staðfestingar um þátttökuna. Skólinn hefur fengið eindæma góð viðbrögð og ungmennin hafa farið sátt heim eftir lærdómsríka, krefjandi en umfram allt skemmtilega viku.

Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunar og styðja fjölmargar rannsóknir þá fullyrðingu að ungmenni sem stunda íþróttir leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmennin tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda tengslanet og auka hæfni sína í mannlegum samskiptum.

Í fyrra var skólinn fullbókaður en við setjum hámarkið við 60 iðkendur. Skólinn á Selfossi 2015 var sá fjölmennasti sem haldinn hefur verið frá upphafi. Nú þegar hafa borist margar skráningar og því um að gera að skrá barnið þitt strax.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst fjolasigny@gmail.com og agustat@hotmail.com

Pósturinn þarf að innihalda eftirfarandi:
Nafn
Heimilisfang
Staður
Kennitala (barns)
Sími
Netfang
Nafn forráðarmanns
Sími forráðarmanns
Aðar upplýsingar sem gott er fyrir þjálfara að vita.

Frjálsíþróttaskóli 2016 - Selfoss er á fésbókinni þar sem hægt er að fylgjast með frjálsíþróttaskólanum á Selfossi.

Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við Ágústu eða Fjólu Signýju.