Blandað lið og stúlknalið 1. flokks hjá fimleikadeild Selfoss kepptu á Mótaröðinni síðasta föstudag. Það var mikil stemning á mótinu og gaman að sjá nokkra af iðkendunum okkar sem kepptu á EM aftur á keppnisgólfinu með Selfoss.
Á Mótaröðinni er keppt á mýkra lendingarsvæði en á hefðbundnum mótum og nýta liðin oft tækifærið til að prófa ný og erfiðari stökk. Liðin safna stigum yfir veturinn og því er engin verðlaunaafhending að loknu hverju móti.
Við erum stolt af okkar liðum og hlökkum til að fylgjast með þeim í vetur. Það er greinilega spennandi og skemmtilegur keppnisvetur fram undan hjá 1. flokki!
Samstarfsaðilar Fimleikadeildar Selfoss eru Íslandsbanki, Bílverk BÁ, Hótel Geysir og HSH þrif og flutningar.