Guðmundur Kr. Jónsson kosinn heiðursformaður HSK

IMG_2388
IMG_2388

Selfyssingurinn Guðmundur Kr. Jónsson var kosinn heiðursformaður HSK á héraðsþingi sambandsins sl. laugardag.

Í greinargerð með tillögu  sem lögð var fram á þinginu sagði m.a. „Guðmundur Kr. varð snemma mjög öflugur félagsmálamaður og tók virkan þátt í starfi Umf. Selfoss og var m.a. formaður frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss árin 1968- 1979 og síðar gengdi hann stöðu vallarstjóra og framkvæmdastjóra félagsins. Hann hefur verið formaður Umf. Selfoss frá 2014.

Hann var kosinn formaður HSK árið 1981 og hélt um stjórnartaumana í átta ár með miklum myndarskap. Hann tók þá sæti í aðalstjórn ÍSÍ og sat í aðalstjórn í tvö ár.

Guðmundur Kr. tekur enn virkan þátt í störfum sambandsins. Hann er t.a.m. mjög eftirsóttur sem þulur á frjálsíþróttamót HSK enda röggsamur og vel til forystu fallinn.

Í bókinni HSK í 100 ár segir um störf Guðmundar „Það er á engan hallað þótt hann sé talinn einn af dugmestu og starfsömustu foringjum Héraðssambandsins Skarphéðins.“

Guðmundur Kr. er vel að því kominn að vera kosinn Heiðursformaður HSK. Hann er sá þriðji í röðinni sem kosinn er heiðursformaður HSK.  Sigurður Greipsson var kosinn á þingi sambandsins árið 1966 og Jóhannes Sigmundsson var kosinn á héraðsþingi árið 2011.“

Ungmennafélag Selfoss óskar Guðmundi Kr. til hamingju með heiðurinn sem er jafnframt ánægjuefni fyrir félagið allt.