Hjálmar Vilhelm með Íslandsmet í fimmtarþraut

Hjálmar Vilhelm Íslandsmeistari
Hjálmar Vilhelm Íslandsmeistari

Meistaramót íslands í fjölþrautum fór fram í Laugardalshöllinni helgina 14-15.janúar. Nokkrir vaskir keppendur frá Frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt og stóðu sig frábærlega.

Fimmtarþraut pilta 15 ára og yngri - Hjálmar Vilhelm Rúnarsson umf.Selfoss varð Íslandsmeistari með 2892 stig sem er nýtt Íslands- og HSK met í greininni en gamla Íslandsmetið var 2727 stig. Árangur Hjálmars í einstökum greinum var: 60m grindarhlaup 9,57 sek, hástökk 1,75 m, kúluvarp 13,79 m ,langstökk 5,60 m og 800 m hlaup 2:15,44 mín. Hjálmar bætti sinn persónulega árangur í fjórum greinum. Í sömu þrautarkeppni varð Helgi Reynisson Umf.Þjótanda í 2.sæti en hann náði 1543 stigum. Flottur árangur hjá þessum fjölhæfum frjálsíþróttapiltum.

Fimmtarþraut stúkna 15 ára og yngri: Bryndís Embla Einarsdóttir Umf.Selfoss varð í 2.sæti með 2747 stig. Helga Fjóla Erlendsdóttir Umf.Garp varð í 3.sæti með 2681stig og Hugrún Birna Hjaltadóttir Umf.Selfoss varð í 4.sæti með 2369 stig. Þær bættu allar sinn besta árangur i þremur greinum. Glæsilegur árangur hjá þessum efnilegum stelpum

Sjöþraut pilta 16-17 ára: Oliver Jan Tomczyk Umf. Selfoss varð í 2.sæti  með 3675 stig. Hann bætti sinn besta árangur í fimm greinum af þeim sjö greinum sem eru í sjöþrautinni. Frábær árangur hjá honum