Hreyfivika UMFÍ | Hvaða sveitarfélag hreyfir sig mest? 

Move-Week-Hreyfivika
Move-Week-Hreyfivika

Hreyfivika UMFÍ, árleg lýðheilsuherferð, hefst í dag mánudaginn 23. maí en hún hefur það að markmiði að kynna kosti þess að stunda hreyfingu og íþróttir. Í fyrra voru þátttakendur í Hreyfiviku UMFÍ um 40 þúsund talsins um land allt.

Í ár verður boðið upp á skemmtilega keppni á milli sveitarfélaga, sem og póstnúmera innan sveitarfélaga, í gegnum heilsuleikinn Sidekick. Sidekick er einfaldur, myndrænn og skemmtilegur snjallsímaleikur, gerður af heilbrigðishugbúnaðarfyrirtækinu SidekickHealth sem stofnað var af tveimur íslenskum læknum. Leikurinn byggir á umfangsmiklu rannsóknarstarfi við Háskóla Íslands, Karolinska-sjúkrahúsið, Sænsku sykursýkissamtökin, Harvard, MIT Media Lab og Massachussetts General sjúkrahúsið í Boston.

 

Í Sidekick skrá þátttakendur t.d. hversu mikið þeir hreyfa sig og hversu oft þeir borða ávexti eða grænmeti og sinna streitustjórn meðan á Hreyfivikunni stendur og safna þannig stigum fyrir sig og sitt sveitarfélag. Með virkni sinni í Sidekick safna notendur vatni handa börnum í neyð sem UNICEF, samstarfsaðili SidekickHealth, sér um að dreifa þar sem þörfin er mest hverju sinni. Nú þegar hafa Sidekick notendur, með heilsueflingu sinni, safnað yfir 200.000 lítrum af hreinu vatni handa börnum í neyð.

Kynningarmyndband um Sidekick

Keppnin er aðallega til gamans gerð en að sjálfsögðu með það að markmiði að hvetja fólk um land allt til að stunda heilbrigðan lífsstíl.

Til að taka þátt sækja þátttakendur heilsuleikinn Sidekick í snjallsímann sinn (App Store eða Google Play). Til að virkja skráninguna og keppa fyrir sitt póstnúmer og sveitarfélag skrá þátttakendur inn póstnúmerið sem þeir ætla að keppa fyrir (t.d. 800 Selfoss, 820 Eyrarbakki eða 825 Stokkseyri). Þegar inn í Sidekick heilsuleikinn er komið er öll sú hreyfing sem fólk stundar (dans, göngutúrar, hlaup, sund o.s.frv.) skráð með afar einföldum og myndrænum hætti ásamt æfingum í mataræðis- og streitustjórn. Því meiri heilsuefling, því fleiri stig!

Ungmennafélag Selfoss hvetjur íbúa sveitarfélagsins Árborgar til að taka þátt og safna þannig stigum fyrir okkar stað og veita skemmtilegum en afar mikilvægum boðskap stuðning.

Einnig má nálgast upplýsingar um hreyfivikuna á heimasíðu UMFÍ.