4. flokkur á Huppumótinu í Hópfimleikum
Sunnudaginn 15. mars fór fram Huppumótið okkar í hópfimleikum.
Við vorum að halda þetta mót í annað skiptið og tóku nú 35 lið þátt og fór mótið fram í 3 hlutum.
Á mótinu er ekki um eiginlega keppni að ræða heldur eru liðin að æfa sig í þeim reglum sem þau keppa eftir, fá reynslu í að koma fram og keppa og fá umsögn á hverju áhaldi. Öll lið fá verðlaun fyrir sitt besta áhald og Ísbúð Huppu gefur öllum gjafabréf.
Mótið var mjög skemmtilegt, það var líf og fjör í húsinu og gekk vel.
Huppa mætti á svæðið og studdi keppendur, fékk knús frá þeim mörgum og stillti sér upp á mynd með liðunum, auk þess sem hún hjálpaði til við verðlaunaafhendinguna.
Við þökkum öllum liðum fyrir komuna og hlökkum til að sjá ykkur á næsta ári!
Við þökkum Ísbúð Huppu fyrir samstarfið á Huppumótinu <3





