Íslandsbanki í áframhaldandi samstarfi við Fimleikadeild Selfoss

Guðbjörg Svava frá Íslandsbanka ásamt Andreu formanni og Berglindi ritara fimleikadeildarinnar við undirritun samningsins. Með þeim á myndinni eru iðkendur úr 1. flokki deildarinnar, Birgir Árni, Eiður Hilmar, Kolbrún María og Stella Natalía.
Guðbjörg Svava frá Íslandsbanka ásamt Andreu formanni og Berglindi ritara fimleikadeildarinnar við undirritun samningsins. Með þeim á myndinni eru iðkendur úr 1. flokki deildarinnar, Birgir Árni, Eiður Hilmar, Kolbrún María og Stella Natalía.

Íslandsbanki og Fimleikadeild Selfoss hafa endurnýjað samstarf sitt. Íslandsbanki verður því áfram stærsti samstarfsaðili deildarinnar í því öfluga starfi sem unnið er innan hennar.

Stuðningur sem þessi skiptir Fimleikadeildina gríðarlega miklu máli og á stóran þátt í að gera deildinni kleift að halda áfram að byggja upp metnaðarfullt og faglegt íþrótta- og uppeldisstarf fyrir iðkendur á öllum aldri.

„Við erum virkilega þakklát fyrir áframhaldandi samstarf við Íslandsbanka. Fyrir okkur skiptir miklu máli að eiga öfluga bakhjarla sem hafa trú á starfinu okkar og vilja styðja við áframhaldandi uppbyggingu þess. Langtímasamstarf eins og þetta gefur okkur mikilvægan stöðugleika og hjálpar okkur að skapa enn betra umhverfi fyrir iðkendur, þjálfara og allt starfið í kringum deildina,“ segir Andrea, formaður Fimleikadeildar Selfoss.

Fimleikadeild Selfoss hefur vaxið og dafnað undanfarin ár og að baki starfinu stendur stór hópur iðkenda, þjálfara, foreldra og sjálfboðaliða. Stuðningur fyrirtækja og samstarfsaðila er því ómetanlegur þáttur í því að hægt sé að halda áfram að þróa starfið og horfa fram á veginn.

„Það er sérstaklega dýrmætt þegar fyrirtæki velja að styðja íþróttastarf til lengri tíma. Slíkur stuðningur snýst um miklu meira en bara keppni og árangur, hann styður við samfélagið, uppeldisstarfið og tækifæri barna og ungmenna til að taka þátt í íþróttum,“ segir Andrea.

Fimleikadeild Selfoss þakkar Íslandsbanka kærlega fyrir traustið og áframhaldandi stuðning og hlakkar til samstarfsins.