Íþrótta- og útivistarklúbburinn 2016

Íþrótta- og útivistarklúbbur 2015 006
Íþrótta- og útivistarklúbbur 2015 006

Íþrótta- og útivistarklúbburinn, sem er fyrir öll börn fædd 2006-2011, er starfræktur í sumar eins og síðastliðin sumur en klúbburinn býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumaranámskeið fyrir hressa krakka.

Fyrsta námskeið sumarsins stendur yfir frá 13.-16. júní en annars er boðið upp á fjögur fjölbreytt og skemmtileg tveggja vikna sumaranámskeið fyrir hressa krakka. Hægt er að velja heilan dag með hollum og góðum hádegismat eða hálfan dag, fyrir eða eftir hádegi allt eftir því hvað hentar fólki.

Íþrótta- og útivistarklúbburinn er staðsettur í Vallaskóla og er gengið inn um inngang við eldhús á milli íþróttahúss og gervigrasvallar (Eikatúns). Hægt er að skrá börn í klúbbinn á staðnum.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá Hilmari Guðlaugssyni og Sigrúnu Örnu Brynjarsdóttur umsjónarmönnum klúbbsins í netfanginu sumarnamskeidumfs@gmail.com, í síma 698-0007 eða á heimasíðu Umf. Selfoss www.umfs.is.

Við hlökkum til að hitta hressa krakka í sumar.