Jólasveinarnir koma á jólatorgið á Selfossi

Jólasveinn
Jólasveinn

Á morgun, laugardaginn 13. desember, munu jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga á jólatorginu í Sigtúnsgarðinum.

Dagskráin hefst kl.15:30 en þá syngur Karlakór Selfoss jólalög og forseti bæjarstjórnar Kjartan Björnsson flytur ávarp. Klukkan 16:00 koma jólasveinarnir í garðinn. Þá verður sungið og trallað og gengið í kringum jólatréð. Magnús Kjartan Eyjólfsson mun síðan spila á torginu seinnipart dagsins þegar jólasveinarnir hafa lokið sínum söng.

Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og klæðist jólasveinabúningum eða jólasveinahúfum. Í tilefni komu jólasveinanna er gestum boðið upp á frítt kakó meðan eitthvað er til í pottunum. Einnig er fjölbreyttur jólavarningu í litlu söluhúsunum sem vert er að skoða.

Ungmennafélag Selfoss mun aðstoða jólasveinana fyrir þessi jól eins og áður og verða þeim innan handar með allt sem snýr að jólasveinamálum. Má þar nefna að taka niður pantanir á jólaböll eða heimsóknir og einnig pakkaþjónustuna, en jólasveinarnir hafa lengi séð um að bera út pakka á aðfangadagsmorgun milli kl. 10-13. Tekið er á móti litlum pökkum í félagsheimilinu Tíbrá á Þorláksmessu kl. 18-21. Nánari upplýsingar og pantanir eru í síma 894-5070 eða í netfanginu umfs@umfs.is.