Jón Daði og Chanté í heimsókn

jóndaði2
jóndaði2

Chanté Sandiford leikmaður Avaldsnes, fyrverandi markvörður Selfyssinga og HM hetjan okkar Jón Daði Böðvarsson leikmaður Reading kíktu í heimsókn á gamla liðsfélaga á dögunum.

 

Norska deildin er í fríi þessa dagana og nýtti Chanté tíman til að kíkja á Ísland og heilsa upp á fyrverandi liðsfélaga og vini.

 

Jón Daði tók æfingu með meistaraflokki karla en hann er að klára síðustu dagana sína í fríi eftir að hafa komið heim frá Rússlandi. Jón Daði heldur út til Reading í vikunni til að hefja undirbúningstímabil fyrir ensku Championship deildina.