Jón Vignir æfir með U21 ára liði Íslands

Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið Jón Vigni Pétursson leikmann Selfoss ásamt 25 leikmönnum frá 13 félögum í hóp sem æfir dagana 7. og 8. febrúar.

Æfingarnar fara báðar fram í Miðgarði í Garðabæ og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir vináttuleik gegn Írlandi 26. mars sem leikinn verður í Cork á Írlandi. Æfingahópurinn samanstendur af leikmönnum sem leika á Íslandi.