Kaffi Krús áfram bakhjarlar handboltans

Kaffi Krús 2019
Kaffi Krús 2019

Handknattleiksdeild Selfoss og Kaffi Krús skrifuðu á dögunum undir áframhaldandi samstarfssamning.  Vinir okkar á Kaffi Krús hafa verið stoltir bakhjarlar handboltans á Selfossi um nokkurt skeið og verða það áfram.

Handknattleiksdeildin er með til sölu 10 þúsund kr. gjafabréf á Kaffi Krús og rennur öll innkoma til deildarinnar.  Þetta er því tilvalin leið til að styrkja handknattleiksdeildina og njóta ljúffengra veitinga á sama tíma.  Gjafabréfin eru til sölu á öllum heimaleikjum Selfoss.


Einar Sindri Ólafsson varaformaður deildarinnar, Tómas Þóroddsson rekstrarstjóri á Kaffi Krús og Hergeir Grímsson fyrirliði meistaraflokks karla.
Umf. Selfoss / ÁÞG