Lokahóf yngri flokka í handbolta

Handbolti 7. fl. kvk (3)
Handbolti 7. fl. kvk (3)

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið föstudaginn 23. maí í íþróttahúsi Vallaskóla frá kl. 17-18.

Á dagskrá er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla. Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta og samgleðjast með krökkunum.