Í síðustu viku lyftu ungir iðkendur handknattleiksdeildar Selfoss sér upp og kvöddu tímabilið með viðeigandi hætti. Mikil vinna fer ár hvert í að ala upp handboltafólk, en líka svo margt annað, enda snúast yngri flokkar um fleira en að búa til afreksfólk í handbolta, þar er alla daga verið að ala upp nýja þjálfara, dómara, stjórnarfólk, sjálfboðaliða, foreldra og félagslega sterka einstaklinga inn í samfélagið okkar. Fyrst á dagskrá á samkomunni var að útnefna félaga ársins í yngri flokkunum og það þarf ekki að koma neinum á óvart að Egill Eyvindur Þorsteinsson fékk bikarinn eftirsótta. Hann hefur verið virkilega ósérhlífinn, tekið þátt í mótahaldi, unnið á heimaleikjum meistarafokkanna og tekið að sér aðstoðarþjálfarahlutverk hjá þó nokkrum yngir flokkum. Þess má svo til gamans geta að foreldrar Egils, þau Eva og Þorsteinn voru valinn félagi ársins á lokahófi deildarinnar um miðjan maí.
Allir krakkar í 6. 7. 8. og 9. flokk karla og kvenna fengu viðurkenningu fyrir að hafa lokið vetrinum. Í 4. og 5. flokki voru svo veittar þrjár einstaklings viðurkenningar. Mestu framfarir, sem er alltaf mikil viðurkenning og staðfesting á því að hafa lagt mikið á sig. Besta ástundunin, það er mikils virði að lifa eftir þeim gildum að vera alltaf tilbúin til að læra og leggja hart að sér. Besti liðsmaðurinn er svo einhver sem alltaf tilbúin í að peppa liðsfélagana áfram í blíðu og stríðu og hefur gott hugafar til liðsins. Að lokum var af vana fýrað upp í grillinu og blásið í hörku pylsupartý.
Myndir og verðlaunahafar á lokahófi yngri flokka 2025

Örn Þrastarson fór með tölu yfir söfnuðinn og Hannes Höskulds var honum til halds og trausts.

Félagi ársins
Egill Eyvindur Þorsteinsson

5. flokkur karla
Mestu framfarir: Þráinn Máni Gunnarsson
Besta ástundun: Hrafn Óli Larsen
Besti liðsfélaginn: Einar Ben Sigurfinnsson
Því miður voru þeir allir þrír fjarverandi

5. flokkur kvenna
Mestu framfarir: Rakel María Víðisdóttir
Besta ástundun: Eva Sól Axelsdóttir
Besti liðsfélaginn: Helga Guðrún Þorbjörnsdóttir

4. flokkur karla
Mestu framfarir: Arnar Gauti Þorkelsson
Besta ástundun: Egill Eyvindur Þorsteinsson
Besti liðsfélaginn: Eiður Þór Baldursson

4. flokkur kvenna
Mestu framfarir: Sylvía Bjarnadóttir
Besta ástundun: Aníta Ýrr Eyþórsdóttir
Besti liðsfélaginn: Karítas Líf Róbertsdóttir
Liðsmyndir yngri flokka 2025
9. flokkur 2025

8. flokkur karla 2025

8. flokkur kvenna 2025

7. flokkur karla 2025

7. flokkur kvenna 2025

6. flokkur karla 2025

6. flokkur kvenna 2025

5. flokkur karla 2025

5. flokkur kvenna 2025

4. flokkur karla 2025

4. flokkur kvenna 2025