Mæðgur efstar í kastþraut Óla Guðmunds

s6
s6

Hin árlega kastþraut Óla Guðmunds fór fram með pompi og prakt föstudaginn 8. september 2017 í sautjánda sinn. Að þessu sinni tóku þátt sjö karlar og sjö konur.

Í karlaflokki sigraði Jón Bjarni Bragason, Breiðabliki, með 2.908 stig. Í öðru sæti með 2.777 stig varð gestgjafinn sjálfur Ólafur Guðmundsson, Selfossi, og Stefán Ragnar Jónsson, Breiðabliki, varð þriðji með 2.488 stig.

Kvennamegin vann Hildur Helga Einarsdóttir með 2.478 stig. Þuríður Ingvarsdóttir, móðir Hildar Helgu, varð önnur með 1.913 stig og Ágústa Tryggvadóttir þriðja með 1.746 stig en þær eru allar frá Selfossi.

Kaffisamsæti í boði Óla Guðmunds. og Írisar Önnu var í Tíbrá að lokinni keppni. Veittir voru verðlaunapeningar fyrir fyrstu þrjú sætin og verðlaunafarandgripir sem gefnir voru af Bros gjafaveri og Guðmundi Kr. Jónssyni og Láru Ólafsdóttur.

Það má segja að kastþrautin sé formlegur endir á sumarkeppnistímabilinu á hverju sumri þar sem húmorinn og léttleikinn er í fyrirrúmi. Að lokum er starfsmönnum mótsins þakkað sérstaklega fyrir þeirra þátt en eðli málsins samkvæmt gæti mótið ekki farið fram án þeirra.

óg

---

Á mynd með frétt eru keppendur í kastþrautinni sem voru léttir að loknu móti.
Fyrir neðan eru keppendur í kvennaflokki og karlaflokki.
Ljósmynd: Umf. Selfoss