MÍ | Kristinn Þór Íslandsmeistari

Frjálsar - MÍ Kristinn Þór Kristinsson
Frjálsar - MÍ Kristinn Þór Kristinsson

Um liðna helgi, 24.–25. febrúar, fór fram Meistaramót Íslands aðalhluti í Laugardalshöll. HSK/Selfoss var með 17 keppendur á mótinu sem allir stóðu sig með miklum ágætum. Uppskera helgarinnar var einn Íslandsmeistaratitill ásamt sjö HSK metum, þremur HSK metjöfnunum og þó nokkrum persónulegum bætingum. Uppistaðan í liðinu um helgina voru unglingar sem voru í eldlínunnu á dögunum á MÍ 15 – 22 ára þar sem HSK/Selfoss sigraði eftirminnilega.

Titill og nokkur HSK met

Reynsluboltinn Kristinn Þór Kristinsson Selfoss sigraði með yfirburðum í 3000 m hlaupi karla er hann hljóp á 9:03,46 mín. Hann tók ekki þátt í sínum aðalgreinum, 800 m og 1500 m vegna smávægilegra meiðsla. Eva María Baldursdóttir Selfoss setti glæsilegt HSK met í 15 ára flokki stúlkna í hástökki er hún rauf 1,70 m. múrinn í fyrsta sinn, hún bætti sitt eigið met um tvo sentimetra. Sjaldan hefur hástökkskeppni kvenna verið jafnsterk en fjórir keppendur fóru yfir 1,70 m og var Eva María í fjórða sæti. Árangur hennar var svo HSK metjöfnun í 16- 17, 18-19 og 20-22 ára flokkum. Guðrún Heiða Bjarnadóttir Selfoss setti HSK met í undanúrslitum 60 m hlaups kvenna hljóp á 8,01 sek. en gamla metið hennar var 8,06 sek. Í langstökkskeppni kvenna varð Guðrún svo í fjórða sæti eftir sentimetrastríð.

Karla sveitin HSK/Selfoss í 4x100 m boðhlaupi sem skipuð var þeim Sindra Seim Heklu, Hákoni Birki, Jónasi Grétars og Degi Fannari sem allir eru í Selfoss (en þeir eru 15 og 16 ára ) hljóp mjög vel og bætti viku gamalt HSK met sitt í 16-17 ára flokki, 18-19 ára, 20-22 ára og karla flokki, er þeir hlupu á 1:37,78 mín en gamla metið var 1:38,73 mín. Dagur Fannar bætti svo eigið HSK met í 800 m hlaupi 16-17 ára þegar hann hljóp á 2:07,82 mín, átti 2;09,8 mín.

HSK/Selfoss varð í 5. sæti í heildarstigakeppni félaga.

Úr fréttabréfi HSK