Minningarhátíð Magnúsar Arnars 2026

Viðurkenningarhafar á Minningarhátíðinni 2026
Viðurkenningarhafar á Minningarhátíðinni 2026

Laugardaginn 30. maí fór fram árleg Minningarhátíð fimleikadeildarinnar. Minningarhátíðin hefur verið haldin frá árinu 1999 til Minningar um Magnús Arnar Garðarsson, sem var félagi í deildinni og einn af hennar fyrstu þjálfurum. Magnús Arnar lést í mótorhjólaslysi aðeins tvítugur að aldri. 

Á minningarhátíðinni okkar koma fram allir iðkendur deildarinnar og sýna afrakstur vetrarins, auk þess sem við veitum viðurkenningar fyrir fimleikaárið. Eftir hátíðina fara yngri hóparnir okkar og parkour í sumarfrí en keppnishóparnir halda áfram að æfa út júní.

Það er alltaf mikil gleði á Minningarhátíðinni og gaman að sjá uppskeru vetrarins og framfarirnar sem hafa átt sér stað. Við erum svo heppin að eiga skemmtilega, áhugasama, metnaðarfulla og duglega iðkendur og algjörlega frábæra þjálfara sem sinna sínu starfi virkilega vel og leggja mikið upp úr því að gera æfingarnar fjölbreyttar og skilvirkar.

Á þessari hátíð voru veittar viðurkenningar fyrir framför og ástundun hjá stúlkum og drengjum, efnilegasta iðkandann hjá stúlkum og drengjum, félaga ársins og lið ársins. Að auki veittum við tilfallandi verðlaun fyrir stuðningsmann ársins.

Lið ársins var 2. flokkur en 2. flokkur hefur í vetur sýnt mikinn metnað, samstöðu og liðsheild. Það er gaman á æfingum hjá þeim, þær mæta á æfingu fullar af áhuga og tilbúnar að prufa nýja hluti. Í vetur sýndu þær miklar framfarir og var virkilega gaman að fylgjast með þeim.

Fyrir framför og ástundun fengu Ása Kristín Jónsdóttir og Matthías Aron Kristjánsson viðurkenningar. Þau eiga það sameiginlegt að leggja sig öll fram á æfingum, mæta vel og sýna okkur stöðugt að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Miklar fyrirmyndir bæði tvö. 

Efnilegustu unglingarnir voru að þessu sinni Hinrik Jarl Aronsson og Stella Natalía Ársælsdóttir. Hinrik og Stella kepptu bæði með sínum liðum á Norðurlandamóti unglinga í vetur og voru þar lykilmenn í sínum liðum. Þau eru sífellt að bæta sig í erfiðleika, án þess að það komi niður á gæðum og hafa alla burði til að ná eins og langt og þau vilja. 

 

Félagi ársins var Dagný Katla Karlsdóttir. Dagný Katla er jákvæð, frábær liðsfélagi, dugleg og metnaðargjörn og vel að þessum titli komin.

Að lokum veittum við tilfallandi verðlaun en við ákváðum að útnefna stuðningsmann ársins. Þessi viðurkenning kemur til af því að við höfum í svolítinn tíma fundið fyrir því hversu ofsalega gott er að hafa þennan stuðningsmann í stúkunni, sem kemur áhorfendum í hvatningargír, hrópar hvatningarorð til iðkenda og er alltaf mættur af öllu hjarta. Þetta er David Vokes og er hann vel að þessum titli kominn.

Eftir hátíðina voru pylsur í boði pylsuvagnsins og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Við þökkum öllum fyrir komuna um helgina og fyrir veturinn - sjáumst að ári á 40 ára afmælis-Minningarhátíð fimleikadeildarinnar.

 

Fimleikadeildin er í samstarfi við Íslandsbanka, HSH þrif og flutninga, Hótel Geysi og Bílverk BÁ.

Fleiri myndir frá hátíðinni eru á Smugmug og verða linkar sendir á Abler.