Myndir frá Héraðsleikum HSK

10996799_10153014375001329_4297473204484333761_n
10996799_10153014375001329_4297473204484333761_n

Laugardaginn 7. mars sl. tóku yngstu iðkendur Frjálsíþróttadeildar Selfoss þátt í Héraðsleikum HSK sem haldnir voru á Hvolsvelli.

Keppendur 8 ára og yngri tóku þátt í þrautabraut. Keppendur 9-10 ára kepptu í einstökum greinum eins og hástökki, langstökki án atrennu, skutlukasti, kúluvarpi og 30 m spretthlaupi.

Lokagreinin var boðhlaup þar kepptu blönduð lið allra félaganna. Í lokin fengu allir verðlaunapening fyrir þátttökuna. Skemmtilegt mót og stóðu keppendur sig með stakri prýði.

---

Hér fyrir neðan eru myndir frá mótinu en einnig má finna fleiri myndir á heimasíðu HSK.

Mynd 1 – Melkorka, Dýrleif Nanna, Elín Jóhanna, Davíð og Kristín ánægð með afraksturinn

Mynd 2 – Elstu keppendurnir að móti loknu stóðu sig vel, Jason Dagur, Hreimur, Elín og Rúrik

Mynd 3 – Leikgleðin í fyrirrúmi. Keppendur 8 ára og yngri í mótslok ásamt þjálfurum.

Mynd 4 – Allir standa saman og eldri styðja þau sem yngri eru.

Mynd 5 –Kátir og prúðir drengir að bíða eftir að komast á næstu stöð.

Mynd 6 – Ein af þrautunum var keðjulangstökk.

Héraðsleikar HSK 2015 - 1

Héraðsleikar HSK 2015 - 2

Héraðsleikar HSK 2015 - 3

Héraðsleikar HSK 2015 - 4

Héraðsleikar HSK 2015 - 5Héraðsleikar HSK 2015 - 6

Héraðsleikar HSK 2015 - 7