Norðanmenn lagðir í markaleik

60434473_1472631746222807_3652913785972195328_o
60434473_1472631746222807_3652913785972195328_o

Það var nóg af mörkum fyrir alla í leik Selfoss og KA í þessum leik í Olísdeild karla í kvöld, en þar lögðu Selfyssingar gestina 36-34.

Selfyssingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu fyrstu þrjú mörkin.  Stefán og Jónatan voru þá búnir að sjá nóg og tóku leikhlé eftir rétt rúmar 2 mínútur.  Það gekk hjá þeim að skerpa sína menn og skiptust liðin á að skora en Akureyringar náðu að jafna leikinn þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af hálfleiknum, áfram skiptust liðin á að skora og lítið um varnir.  Allt jafnt í hálfleik, 19-19.

Það er ljóst að þjálfararnir í báðum klefum töluðu um að þétta vörnina, en liðin héldust áfram í hendur og jafnt á öllum tölum fyrstu 10 mínúur síðari hálfleiksins.  Þá bættu Selfyssingar í og sigldu framúr og var forystan komin í 5 mörk, 29-24, þegar 46 mínútur voru á klukkunni.  Þá tóku KA sitt síðasta leikhlé og ákváðu að taka Hauk Þrastarson úr umferð.  Sóknarleikur Selfyssinga riðlaðist heldur við það, en ró komst yfir hann fljótlega aftur.  KA-menn reyndu hvað þeir gátu og fóru maður á mann síðustu mínúturnar  og hleyptu leiknum upp.  Þeir náðu að koma spennu i lokamínútuna, en Selfyssingar stóðust áhlaupið.

Mörk Selfoss: Hergeir Grímsson 11/3, Árni Steinn Steinþórsson 9, Haukur Þrastarson 9, Atli Ævar Ingólfsson 3, Nökkvi Dan Elliðason 3, Guðjón Baldur Ómarsson 1.

Varin skot: Sölvi Ólafsson 8 (31%), Einar Baldvin Baldvinsson 4 (23%).

Nánar er fjallað um leikinn á Vísir.is, Mbl.is og Sunnlenska.is

Strákarnir eru þar með komnir með 9 stig og náðu með þessum sigri að lyfta sér í 4. sæti deildarinnar.  Nú tekur við landsleikjahlé í Olísdeildinni og er næsti leikur strákanna í Mosfellsbæ gegn Aftureldingu 31. október.  Stelpurnar okkar eru hins vegar á fullri ferð í Grill 66 deildinni og taka á móti Fjölni á sunnudaginn kl. 19:30.  Við sjáumst í Hleðsluhöllinni þá.


Hergeir Grímsson átti stórleik bæði í vörn og sókn.
Umf. Selfoss / JÁE