Norræn ungmennavika í Noregi

Dagana 28. júlí til 2. ágúst næstkomandi fer fram ungmennavika NSU í Noregi. Dagskráin í ár á erindi við öll ungmenni en sérstaklega þau sem hafa áhuga á leiklist og kvikmyndagerð.

Ungmennavika NSU rennur að þessu sinni inn í stórviðburð sem Norsk Frilynt heldur fyrir aðildarfélög sín í Noregi ár hvert og heitir SplæshCamp. Dagskráin er stórglæsileg og þema vikunnar að þessu sinni er leikhús, kvikmyndagerð og menning tengt norrænum glæpasögum. Á SplæshCamp mæta um 350 ungmenni víðsvegar frá Noregi og þátttakendur frá hinum norðurlöndunum verða um 60.

Hér má finna frekari upplýsingar um ungmennavikuna.

UMFÍ á sæti fyrir 12 þátttakendur að þessu sinni og styrkir alla þátttakendur sína til ferðarinnar auk þess sem frábær fararstjóri fer með hópnum. Skráningarfrestur á ungmennavikuna rennur út 20. maí nk.

Allar nánari upplýsingar um kostnað og styrki veitir Sabína Steinunn landsfulltrúi í síma 568-2929 og á netfanginu sabina@umfi.is.