Ný stjórn Knattspyrnudeildar.

Ný stjórn knattspyrnudeildar, f.v Eiríkur Steinn, Guðjón Bjarni, Jón Steindór, Harpa, Telma og Atli …
Ný stjórn knattspyrnudeildar, f.v Eiríkur Steinn, Guðjón Bjarni, Jón Steindór, Harpa, Telma og Atli Marel.

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Umf.Selfoss, var haldinn 29.mars sl. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf, ásamt yfirferð á starfi deildarinnar á sl. ári og þessu ári.  Hugur var í fundarmönnum um starf deildarinnar og framtíðina.  Á fundinum var kosin ný stjórn deildarinnar, en hana skipa:

Jón Steindór Sveinsson, formaður.

Eiríkur Steinn Búason, gjaldkeri.

Guðjón Bjarni Hálfdánarson, ritari og varaformaður.

Atli Marel Vokes, meðstjórnandi.

Harpa Íshólm Ólafsdóttir, meðstjórnandi.

Telma Österby, varamaður í stjórn.