Nýr og glæsilegur frístundavefur Árborgar

Frístundavefur
Frístundavefur

Opnaður hefur verið nýr frístundavefur fyrir Sveitarfélagið Árborg. Vefurinn kemur í stað hins svokallaða „Sumarbæklings Árborgar" sem hefur verið gefin út mörg undanfarin ár. 

Á vefnum eru allar helstu upplýsingar um námskeið og afþreyingu í sveitarfélaginu og nágrenni þess í sumar en markmiðið er að vefurinn muni allt árið birta upplýsingar um frístundastarf og afþreyingarmöguleika í sveitarfélaginu fyrir alla aldurshópa. Á vefnum eiga íbúar að geta fundið allar upplýsingar á einum stað.

Undir hverju námskeiði á vefnum eru upplýsingar um hvernig hægt er að nálgast nánari upplýsingar og skrá sig á námskeið.

Frístundavefur Árborgar - slóðin er www.fristundir.arborg.is. 

Ef þú ert með námskeið í gangi þá endilega sendu inn upplýsingar svo hægt sé að bæta þeim við inn á frístundavef Árborgar. Upplýsingar skal senda á gunnars@arborg.is.