Nýr samningur við Flugfélag Íslands

ISI-logo
ISI-logo

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Flugfélag Íslands hafa undirritað nýjan samning um afsláttarkjör á innanlandsflugi fyrir íþróttahreyfinguna. Hækkun á fargjöldum fullorðinna frá fyrri samningi er 2% en þar sem lækkun varð á eldsneytisgjaldinu þá er samtals lítil sem engin hækkun í krónutölu frá fyrri samningi á þessum fargjöldum.

Samningurinn er aðgengilegur á heimasíðu ÍSÍ. Athygli er vakin á viðbótarákvæðum í samningnum varðandi þær leiðir sem í boði eru ef ÍSÍ fargjald er ekki fáanlegt.