Perla og Kristrún með landsliðinu

Perla og Kristrún með landsliðinu
Perla og Kristrún með landsliðinu

Þær Perla Ruth Albertsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir voru báðar valdar í A-landslið kvenna nú í nóvember en liðið lék þrjá æfingaleiki í lok mánaðarins við Þýskaland og Slóvakíu. Þetta voru fyrstu landsleikir þeirra beggja með A-landsliðinu.

Fyrsti leikurinn var gegn Þjóðverjum, leikurinn fór fram í Dresden í Þýskalandi og var full höll og mikil stemming á leiknum. Þýskaland vann leikinn örugglega 32-19 eftir að hafa verið yfir 17-12 í hálfleik.

Liðið lék síðan tvo leiki gegn Slóvakíu og vann þá báða með tveggja marka mun. Fyrri leikinn unnu þær 28-26 og þann seinni 27-25.

Perla Ruth var í byrjunarliði í öllum þremur leikjunum og skoraði í þeim samtals 10 mörk, þar af var hún markahæst í seinni leiknum gegn Slóvakíu ásamt Þórey Rósu með 7 mörk. Hún stóð sig einnig mjög vel í vörninni. Kristrún komst ekki á blað í leikjunum en það er ljóst að stelpurnar hafa báðar öðlast dýrmæta reynslu með sínum fyrstu landsleikjum. Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með þennan stóra áfanga.