Sætaferðir á bikarleik Selfyssinga gegn KR

gtbus12
gtbus12

Knattspyrnudeild Selfoss í samstarfi við Guðmund Tyrfingsson ehf. býður upp á sætaferðir á bikarleik Selfoss og KR í Borgunarbikarkeppninni sem fram fer á Alvogenvellinum miðvikudaginn 25. maí kl. 19:15.

Öllum iðkendum deildarinnar stendur til boða að fara á leikinn en nauðsynlegt er að iðkendur skrái sig hjá þjálfara sínum eða á fésbókarsíðum síns flokks.

Foreldrar og annað stuðningsfólk Selfoss getur einnig skráð sig á fésbókarsíðu knattspyrnudeildar Selfoss FC fyrir hádegi á miðvikudag. Sæti í rútunni kostar litlar 500 kr.

Brottför er frá félagsheimilinu Tíbrá stundvíslega kl. 17:30.