Samstarf við Landsbankann

20141110 Handbolti Samningur við Landsbankann
20141110 Handbolti Samningur við Landsbankann

Í dag var endurnýjaður samningur Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss við Landsbankann á Selfossi sem verður áfram einn helsti samstarfsaðili deildarinnar. Landsbankinn hefur um árabil verið dyggur stuðningsaðili deildarinnar og nær samstarfið bæði til starfsemi meistaraflokka og yngri flokka félagsins.

Handknattleiksfólk á Selfossi hlakkar til áframhaldandi góðs samstarfs við bankann. Sem fyrr byggir starf deildarinnar á góðum stuðningi samstarfsaðila félagsins og því er mikill akkur í samstarfi við öflugt fyrirtæki á borð við Landsbankann.

---

Það voru (f.v.) Helga Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Landsbankanum, Þorsteinn Rúnar Ásgeirsson formaður handknattleiksdeildar Selfoss, Gunnlaugur Sveinsson útibússtjóri Landsbankans á Selfossi og Einar Guðmundsson yfirþjálfari yngri flokka handknattleiksdeildar Selfoss sem undirrituðu samninginn í Landsbankanum í dag. Þeim til aðstoðar voru (f.v.) Perla Ruth Albertsdóttir, Andri Már Sveinsson, Alexandra Bía Sumarliðadóttir og Gunnar Páll Júlíusson leikmenn meistaraflokka Selfoss.