Selfyssingar í sveitakeppni

Sveitakeppni JSÍ 2014
Sveitakeppni JSÍ 2014

Selfyssingar taka þátt í sveitakeppni Júdósambands Íslands sem verður haldin í Laugardalshöllinni á morgun, laugardag 28. nóvember.

Átta sveitir eru skráðar til leiks, sex karla og tvær kvennasveitir en Selfyssingar taka þátt í karlaflokki. Keppnin hefst keppnin kl. 13:00 og eru mótslok áætluð um kl. 16:00. Þetta er Íslandsmót í liðakeppni 15 ára og eldri þar sem okkar bestu og hæfustu keppendur eigast við og er búist við spennandi keppni því engin sveit á sigurinn vísan.

Liðsmenn Selfyssinga eru Þór Davíðsson sem keppir í +90 kg flokki, Egill Blöndal og Grímur Ívarsson keppa í -90 kg flokki, Guðmundur Tryggvi Ólafsson og Þór Jónsson í -81 kg flokki og Ýmir Örn Ingólfsson keppir í -73 kg flokki.

Við óskum þeim góðs gengis í keppninni.

---

Sveit Selfyssinga sem tók þátt í keppninni 2014.