Skráning á haustönn - keppnishópar

 Vorönninni okkar er nú lokið og þökkum við fyrir skemmtilegan og viðburðaríkan fimleikavetur.

Haustönnin okkar hefst 10. ágúst hjá öllum keppnishópunum okkar, iðkendum fæddum 2018 og fyrr en 1. september hjá yngri flokkum og parkour.

Við byrjum á sumaræfingum frá 10. - 20. ágúst þar sem 5. flokkur, 4. flokkur, kky og 3. flokkur æfa á morgnana og 2. flokkur og eldri æfa seinni partinn. Þegar skólinn hefst fara yngri flokkarnir (5. - 3. fl) í æfingafrí á meðan við klárum stundatöflu haustannar og við hefjum svo leika aftur 1. september samkvæmt stundatöflu.

Nú hefur áskrift allra hópa klárast og iðkendur því dottnir úr sínum hópum og þurfið þið því að skrá að nýju fyrir haustönnina (þar inní eru sumaræfingarnar í ágúst), en skráninguna má finna hér: https://www.abler.io/shop/umfs/fimleikar

Við hvetjum ykkur til að vera búin að ganga frá skráningu áður en sumaræfingar hefjast þar sem það auðveldar okkur mikið skipulag haustsins að vera með nokkuð góða mynd af fjölda iðkenda strax í ágúst.

Skráning yngri iðkenda og í íþróttaskólann hefst í ágúst og verður auglýst sérstaklega.

Við hlökkum til að sjá ykkur í haust, njótið sumarsins :)