 
				
									Fimleikar 2014 (1)
							 
				Síðasta sumarnámskeið Fimleikadeildar Selfoss fyrir sumarfrí hefst mánudaginn 23.júní.  Námskeiðið er alla vikuna og er kennt eftir hádegi frá 13:00-15:30.  Námskeiðin eru fyrir stráka og stelpur fædd 2008-2004.  Farið er í grunnæfingar í fimleikum, liðleika- og styrktarþjálfun og leiki.  Kennari er Þyrí Imsland fimleikaþjálfari og grunnskólakennaranemi.  Verð krónur 6000.
Skráning fer fram í gegnum vefinn selfoss.felog.is  eða á netfanginu fimleikarselfoss@simnet.is
Næstu námskeið eftir sumarfrí eru svo 5. - 8. ágúst og 11. - 15. ágúst