Úlfur Böðvarsson og Egill Blöndal Íslandsmeistarar á Meistaramóti Íslands 2013

2013-04-20 14.25.14
2013-04-20 14.25.14

Íslandsmót í Júdó 2013 aldursflokka frá 11 ára til 20 ára fór fram 20. apríl í sal Júdódeildar Ármanns. Keppendur frá Selfossi voru níu og árangur mjög góður en keppendur voru alls 103 frá flestum júdófélögum landsins.

Úlfur Böðvarsson kórónaði glæsilegan keppnisvetur með því að verða Íslandsmeistari og, eins og oft áður í vetur, sigraði hann með nokkrum yfirburðum. Þarna er á ferðinni efnilegur íþróttamaður, sem vert er að fylgjast með, og drengur góður.

Egill Blöndal fékk ekki mikla mótspyrrnu í þetta skiptið þar sem hann tókst á við Romans Rumba sem var ekki mikil fyrirstaða fyrir Egil en Roman hefur verið nokkuð frá æfingum vegna meiðsla. Eins og ævinlega glímdi Egill af öryggi og var vel að Íslandsmeistaratitlinum kominn.

Grímur Ívarsson hefur oft átt betri daga en á þessu móti og eru aðdáendur kannski farnir að gera heldur miklar kröfur til Gríms sem er nýkominn upp um aldurs- og þyngdarflokk. Í þetta skiptið varð 3. sæti niðurstaðan og verður gaman að sjá til hans næsta vetur.

Sveitakeppni drengja undir 13 ára var mjög spennandi og endaði þannig að 3 lið voru jöfn að vinningum þ.e. Selfoss, JR og Draupnir. Röðust liðin á endanum eftir innbyrðis stigum og varð lið JR efst, Draupnir í öðru sæti og UMFS í því þriðja.

Öll úrslit Selfyssinga má sjá hér fyrir neðan.

Verðlaun í flokki undir 13 ára, –46 kg
Bjartþór Böðvarsson       2. sæti
Valdimar Sveinsson        3. sæti

Verðlaun í flokki undir 13 ára, –55 kg
Halldór Bjarnason           3. sæti

Verðlaun í flokki undir 15 ára, –81 kg
Úlfur Böðvarsson            1. sæti Íslandsmeistari

Verðlaun í flokki undir 15 ára, +100 kg
Sigurður Fannar Hjaltason 2. sæti

Verðlaun í flokki undir 18 ára, –81 kg
Grímur Ívarsson              3. sæti

Verðlaun í flokki undir 18 ára, –90 kg
Egill Blöndal                  1. sæti Íslandsmeistari

Verðlaun í flokki undir 21 árs, +100 kg
Trostan Gunnarsson       3. sæti

Sveitakeppni, drengir undir 13 ára 3. sæti
Sveitina skipuðu:
Hrafn Arnarsson
Bjartþór Böðvarsson
Halldór Bjarnason