Úrslit í fjórða Grýlupottahlaupinu 2014

Grýlupottur 2014 ræsing
Grýlupottur 2014 ræsing

Fjórða Grýlupottahlaup ársins 2014 fór fram á Selfossvelli laugardaginn 17. maí og þreyttu 109 þátttakendur hlaupið að þessu sinni. Veður var milt en léttur rigningarúði lék við hlaupara. Bestum tíma náðu systkinin Hildur Helga á 3,50 mín og Teitur Örn  á 2,33 mín.

Úrslit úr hlaupum ársins má finna á fréttavefnum Sunnlenska.is með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan.

4. Grýlupottahlaup 2014

3. Grýlupottahlaup 2014

2. Grýlupottahlaup 2014

1. Grýlupottahlaup 2014

Fimmta hlaup ársins fer fram nk. laugardag 24. maí. Skráning hefst í Tíbrá kl. 10:30 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega til að forðast biðraðir.

Allir sem lokið hafa fjórum hlaupum fá viðurkenningu og verður verðlaunaafhending laugardaginn 7. júní kl. 11:00 við Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss.

---

Það er ávallt mikil spenna í ræsingunni.
Mynd: Úr safni Umf. Selfoss