Vésteinn sæmdur gullmerki Umf. Selfoss

Umf. Selfoss - Vésteinn Hafsteinsson
Umf. Selfoss - Vésteinn Hafsteinsson

Selfyssingurinn Vésteinn Hafsteinsson hefur fylgt Ungmennafélagi Selfoss frá fæðingu. Fyrst sem iðkandi, þjálfari og fyrirmynd íþróttafólks en síðar sem ráðgjafi og lærifaðir þjálfara hjá félaginu.

Það er ekki heiglum hent að klófesta Véstein, sem búsettur er í Svíþjóð og alltaf með mörg járn í eldinum. Það var því afar ánægjulegt að ná loksins að króa hann af heima hjá Þorvaldi bróður hans milli hátíða.

Viktor S. Pálsson, formaður Umf. Selfoss, fékk þann heiður að næla gullmerki Umf. Selfoss í barm Vésteins og þakka honum þannig fyrir ævilangt framlag sitt til ungmennafélagsins en við vitum jafnframt að hann er hvergi nærri hættur að miðla af reynslu sinni til iðkenda og þjálfara á Selfossi.

---

Þeir voru kampakátir Viktor (t.h.) og Vésteinn þegar búið var að afhenda gullmerkið.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson