Við erum lögð af stað á Norðurlandamót!

1. flokkarnir okkar eru lagðir af stað á Norðurlandamót!
1. flokkarnir okkar eru lagðir af stað á Norðurlandamót!

1. flokkur stúlkna og 1. flokkur mix eru lögð af stað á Norðurlandamót.

Þau flugu til Osló nú í morgunsárið og fljúga svo þaðan til Sola í Noregi.

Liðin fá æfingadag á morgun, föstudag og keppa svo á laugardaginn en það er mikil spenna og tilhlökkun í liðunum.
Blandaða liðið keppir kl 8:30 á íslenskum tíma og stúlknakeppnin hefst kl 11:30. Selfoss er í seinni hlutanum og hefur keppni kl 12:15.
Hægt er að kaupa streymi hjá Gympabubblan. Það þarf að búa til aðgang og skrá sig inn til þess að fá aðgang að streyminu.

Hér verður hægt að fylgjast með úrslitunum í beinni.

Við óskum keppendum og þjálfurum góðrar ferðar og góðs gengis - Áfram Selfoss!

Liðin fengu styrk frá flottum fyrirtækjum þegar þau voru að safna sér fyrir ferðinni en Set var þeirra stærsti styrktaraðili fyrir þetta
mót. Egill Guðjóns ehf, Lágafell verslun og byggingar og Fossvélar veittu þeim einnig góðan styrk, auk íbúa Selfoss sem tóku vel á móti þeim þegar að fjáröflunum kom. Liðin vilja koma á framfæri kærum þökkum fyrir stuðninginn.



Hótel Geysir, Lena verslun og Reykjavík Warehouse og ÍSAM heildsala gáfu keppendum einnig góðar gjafir áður en þau fóru af stað út.

 

Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Íslandsbanka, Hótel Geysi, HSH þrif og flutninga og Bílverk BÁ.