Anna Metta á verðlaunapalli fyrir Íslandsmeistaratitil í fimmtarþraut í flokki 15 ára stúlkna
Meistaramót Íslands í fjölþrautum var haldið í Reykjavík helgina 16.-17.ágúst. Frjálsíþróttadeild Selfoss átti tvo keppendur í 15 ára flokki sem stóðu sig báðir frábærlega.
Anna Metta Óskarsdóttir varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut í flokki 15 ára. Anna Metta hlaut 2802 stig í fimmtarþrautinni. Árangurinn er jafnframt Íslandsmet hjá Önnu Mettu og HSK met í í flokki 15 ára. Hún sigraði langstökkið með 5,14m stökki og spjótkastið þegar hún kastaði spjótinu 32,66m. Anna Metta bætti sinn besta árangur í 800m hlaupi á tímanum 2:39,42 mín. Hún bætti sig einnig í 80m grindahlaupi er hún kom í mark á tímanum 12,81 sek og að lokum bætti hún sinn besta árangur í kúluvarpi með 9,23m löngu kasti. Frábær þraut hjá hinni stórefnilegu Önnu Mettu.
Magnús Tryggvi Birgisson varð í þriðja sæti í fimmtarþraut í flokki 15 ára pilta en hann er 14 ára gamall en hann náði 2085 stigum. Árangurinn hjá Magnúsi Tryggva er jafnframt HSK met í 14 og 15 ára flokkum.Hann sigraði kastgreinarnar báðar, kastaði kringlunni 33,28m og spjótinu kastaði hann 36,80m og bætti sinn besta árangur. Hann bætti sinn besta árangur í 800m hlaupi er hann kom í mark á tímanum 2:43,32 mín og 100m grindahlaupið hljóp hann á 19,15 sek sem er bæting hjá honum. Að lokum stökk hann 4,26m í langstökki. Flottur árangur hjá hinum efnilega Magnúsi Tryggva