Bryndís Embla Einarsdóttir keppti á HM U20 sem fram fór í Portland, Oregon í Bandaríkjunum.
Mótið var haldið dagana 5.-9.ágúst. Bryndís Embla keppti í undankeppni í spjótkasti föstudaginn 7.ágúst. Hún kastaði spjótinu 48,64m og var aðeins 45cm frá því að ná sæti í úrslitum. Hún hafnaði í 16.sæti. Mótið er stærsti viðburður í heimi í þessum aldursflokki og það var virkilega vel gert hjá henni að ná lágmarki inn á mótið tæplega 17 ára gömul.