Bryndís Embla Einarsdóttir UMF Selfoss keppti í gær á vormóti ÍR. Hún vann gullverðlaun á mótinu í flokki U18 eftir að hafa kastað 500gr spjóti 51,94m. Þetta kast er íslandsmet í 16-17 ára aldursflokki. Jafnframt er um að ræða HSK met í 16-17 ára flokki & 18-19ára flokki.