Arnar Pétursson landsliðsþjálfari í handbolta valdi Emelíu Ósk Aðalsteinsdóttur í sinn landsliðshóp sem æfir í Reykjavík þessa vikuna.
Emelía Ósk er nú valin í A-landsliðið í fyrsta sinn en hún var mikilvægur hlekkur í U-20 ára landsliði kvenna sem lék á heimsmeistaramóti unglingalandsliða í Kína í sumar. Þetta er að sjálfsögðu mikill heiður fyrir Emelíu og ekki síður rós í hnappagatið fyrir handknattleiksdeild Selfoss.
Heimasíðan óskar Emelíu innilega til hamingju með valið!