Fimm afreksmenn frjálsíþróttadeildar með lágmörk í Úrvalshóp FRÍ

Á myndinni eru frá vinstri, Álfrún Diljá, Þorvaldur Gauti, Daníel Breki, Hjálmar Vilhelm og Eydís Ar…
Á myndinni eru frá vinstri, Álfrún Diljá, Þorvaldur Gauti, Daníel Breki, Hjálmar Vilhelm og Eydís Arna.

Frjálsíþróttasamband Íslands velur tvisvar sinnum á ári úrvalshóp úr hópi unglinga 15-19 ára þar sem markmiðið er að skapa umhverfi þar sem íþróttir snúast um meira en bara keppni og árangur. Umhverfi þar sem unglingarnir fá ekki einungis tækifæri til að þróast sem íþróttamenn heldur einnig tækifæri til að eignast vini, skapa sér heilbrigðan lífstíl og læra að sigrast á sjálfum sér með því að setja sér raunhæf markmið og plön. Frjálsíþróttasambandið gefur út krefjandi lágmörk til þess að komast í hópinn og er mjög eftirsóknarvert að ná í hópinn. Haldnar eru æfingabúðir þar sem færir þjálfarar leiðbeina hópnum og er æft við bestu aðstæður.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss náði þeim frábæra árangri að fimm ungmenni úr þeirra röðum náðu að komast í hópinn. Þar að auki náði Ívar Ylur Birkisson Dímon lágmarki í 100 m grindahlaupi en hann æfir með frjálsíþróttadeild Selfoss

Þetta eru þau:
Álfrún Diljá Kristínardóttir - Sleggjukast
Þorvaldur Gauti Hafsteinsson - 800m og 1500 m hlaup
Daníel Breki Elvarsson - Spjótkast
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson - Spjótkast og hástökk
Eydís Arna Birgisdóttir - 300 m grindahlaup