Frábær árangur á Gautaborgarleikum - Bryndís Embla setur Íslandsmet og með lengsta kast U18 í Evrópu á árinu

Keppnishópurinn frá Selfossi
Keppnishópurinn frá Selfossi

Iðkendur frá Frjálsíþróttadeild Selfoss fjölmenntu á Gautarborgarleikanna í Frjálsum íþróttum sem fram fóru á Slottsskogsvallen í Gautaborg daganna 25.-28.júní. Um 3.000 þátttakendur frá 27 löndum tóku þátt í mótinu.

Mikið var um persónulegar bætingar, Íslandsmet, HSK met og margir komust á verðlaunapall.

Bryndís Embla Einarsdóttir sigraði í spjótkasti U18. Hún kastaði spjótinu hvorki meira né minna en 57,02m sem er hennar besti árangur með 500gr. spjót. Kastið er mótsmet á Gautarborgarleikunnum, Íslandsmet í U18 & nýtt HSK met. Kastið skaut henni í toppsætið U18 í Evrópu og á þriðja sæti heimslistans. Algerlega frábær árangur hjá Bryndísi Emblu.

Bryndís Embla vann einnig gull í kúluvarpi U18 með því að kasta kúlunni 13,39m.

Ívar Ylur Birkisson vann gull í 110m grindarhlaup U20 en hann hljóp á 14,18sek sem er jafnframt nýtt HSK met. Íslandsmetið er 14,05sek og er því ljóst að Ívar er að nálgast það.

Ásta Krístín Ólafsdóttir vann gull í spjótkasti í 15 ára flokki með kasti upp á 38,97m.

Anna Metta Óskarsdóttir vann brons í þrístökki U18 með stökk upp á 11,24m.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson vann brons í hástökki U20 en hann stökk 1,86m.

Kristján Kári Ólafsson vann brons í sleggjukasti U20 með kasti upp á 51,5m.

Helga Fjóla Erlendsdóttir vann brons í langstökki U18, hún stökk 5,52m sem er nýtt HSK met hjá henni. Helga Fjóla komst einnig í úrslit í 100m grindarhlaupi og endaði í 6.sæti, hún hljóp á tímanum 15,17sek sem er einnig nýtt HSK met. Eldra met átti Ágústa Tryggvadóttir sem var orðið 27 ára gamalt.

Daníel Breki Elvarsson vann brons í karlaflokki í spjótkasti en hann kastaði spjótinu 58,11m.