Fimm keppendur sem æfa með UMF Selfoss í frjálsum íþróttum tóku þátt fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti U20 í frjálsum íþróttum sem fram fór í Vasa í Finnlandi 4.-5.júlí sl.
Bryndís Embla Einarsdóttir UMF Selfoss keppti í spjótkasti og náði bronsverðlaunum með því að kasta 600gr kvennaspjóti 51,20m. Helga Fjóla Erlendsdóttir Garpi keppti í hástökki og langstökki. Hún stökk 5,23m í langstökki og lenti í 8.sæti. Hún stökk 1,64m í hástökki og lenti í 6.sæti. Kristján Kári Ólafsson UMF Selfoss keppti í sleggjukasti og kastaði sleggjunni 49,95m og lenti í 9.sæti. Ívar Ylur Birkisson Dímon keppti í 110m grindarhlaupi og hljóp á 14,71sek og lenti í 4.sæti. Hjálmar Vilhelm Rúnarsson UMF Selfoss keppti í kúluvarpi þar sem hann kastaði kúlunni 14,42m og lenti í 8.sæti. Hann kastaði kringlunni 46,33m sem skilaði honum í 7.sæti og hann stökk 1,87m í hástökki þar sem hann lenti í 7.sæti. Virkilega góður árangur hjá okkar fólki og þau öll reynslunni ríkari eftir mót sem þetta.