Grýlupottahlaup 2/2026 - Úrslit

Fjölmenni tók þátt í Grýlupottahlaupinu laugardaginn 18.4.26
Fjölmenni tók þátt í Grýlupottahlaupinu laugardaginn 18.4.26

156 keppendur tóku þátt í öðru Grýlupottahlaupinu þetta árið. Hlaupið var í blíðskaparveðri laugardaginn 18.apríl. 

Hjá stelpunum náðu þær Steinunn Heba Atladóttir og Ástdís Lilja Guðmundsdóttir besta tímanum, en þær hlupu á sama tíma eða 03:24.

Hjá strákunum var það sama upp á teningnum en feðgarnir Elmar Andri Bragason og Bragi Bjarnason komu í mark á tímanum 03:18.

Hlaupið var annað hlaupið af 6 hlaupum. Næstu hlaup eru 25.apríl, 2.maí, 9.maí & 16.maí. Að loknum sex hlaupum eru teknir saman besti árangur úr samanlögðum fjórum hlaupum og veitt verðlaun.

Úrslit úr hlaupinu má sjá á eftirfarandi slóð: https://timekeep.34h.dev/Grylupottahlaup

Ef þið sjáið villu í úrslitum (vitlaust nafn, rangt fæðingarár eða tími stemmir ekki) sendið þá athugasemd á netfangið frjalsar@umfs.is