Lið Selfoss
Héraðsmót HSK var haldið laugardaginn 21.mars. Þar sigraði lið Selfoss stigakeppni félaganna. Kristján Kári Ólafsson og Bryndís Embla Einarsdóttir urðu héraðsmeistarar í kúluvarpi, hann með með kasti upp á 12,38m og hún kastaði lengst 11,48m. Ísold Assa Guðmundsdóttir sigraði stangarstökk kvenna með stökki upp á 2,70m.
Héraðsleikar HSK 10 ára og yngri fóru einnig fram þann sama dag og voru vel sóttir, en ríflega 100 þáttakendur voru skráðir til leiks. Keppt var í 60m hlaupi, langstökki, skutlukasti, hástökki og kúluvarpi. Á Héraðsleikum fá allir þáttakendur verðlaunapening að loknu móti.
Héraðsmót fatlaðra fór einnig fram þennan dag. Sigurjón Ægir Ólafsson og María Sigurjónsdóttir kepptu í kúluvarpi. Sigurjón Ægir kastaði kúlunni lengst 3,79m og María kastaði lengst 5,77m.